Er fólk virkilega að átta sig á þessu núna?

Hvað ætli ég hafi lesið um þetta oft í blöðunum, konur koma heim alveg réttindalausar eftir dvöl úti?

Man eftir td einu þar sem stúlkan fór út á meðan hún var í fæðingarorlofi og dvaldi hjá manni sínum, þegar hún kom heim var búið að svipta hana lögheimilinu og hún réttindalaus í hálft ár...

Þetta er auðvitað alveg fáránlegt en auðvitað verður íslenska ríkið að spara peningana sína með því að taka þá af ungum nýbökuðum mæðrum svo það geti nýtt þá í annað, tja td ef annað baugsmál kemur upp! 


mbl.is Réttindalaus eftir dvöl erlendis
Tilkynna um óviðeigandi tengingu við frétt

« Síðasta færsla

Athugasemdir

1 identicon

Þessi réttindi eru öll ágæt, en lestur þessa viðtals/fréttar er samt athyglisvert fyrir þær sakir að manneskjan vill fá peninga úr fæðingarorlofssjóði (sem er fjármagnaður með tryggingagjaldi af launum fólks á vinnumarkaði, líka þeirra sem ekki ætla að eignast nein börn eða eru löngu búnir að því og fengu ekkert fæðingarorlof) og hún virðist líka vilja fá atvinnuleysisbætur (fjármagnaðar með sama hætti) og klikkir svo út með að tala um miklu einfaldara bótakerfi í Danmörku. Hvergi kemur fram að manneskjan hafi nokkurn tíma unnið neitt sjálf, né að hún hafi um það áætlanir, en vonandi hefur bara láðst að geta þess. Það má alveg annað slagið halda því til haga í allri réttindaumræðunni að peningarnir falla ekki af himnum ofan.

Gústaf (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 09:28

2 identicon

fram kemur að hún hafi verið í fjarnámi á Íslandi þennan tíma sem hún býr úti og borgað skólagjöld hingað heim sem þýðir að hún ætti væntanlega rétt á fæðingarstyrk sem námsmaður á Ísl.

Guðbjörg (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 09:38

3 Smámynd: katikal

Nákvæmlega það sem ég las, hún var í fjarnámi á Íslandi og borgaði öll skólagjöld og annað hingað heim eins og hver annar námsmaður sem hefði verið í fjarnámi á Íslandi og hefur þessi réttindi.

Þegar íslendingar fá engin réttindi en svo fá geðsjúkir menn eins og Bobby Fisher réttindi um leið og hann snappar fingrunum hér á landi, þá þarf nú að fara að skoða eitthvað betur hérna. 

katikal, 18.7.2007 kl. 12:18

4 identicon

HvaÐ er Suprizið????? Síðan hvenær eru þetta nýar fréttir??????? Flutti heim fyrir 9 árum sjálfur og þá var þetta svona líka.

kristján (IP-tala skráð) 18.7.2007 kl. 14:03

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband